Hér er komið inn nýtt áhugamál sem margir stunda, en hafa
mismikinn “áhuga” á. Það eru þó flestir sem ganga í gegnum
þessi ár á lífsleiðinni. Flestir munu líta til baka og muna eftir
þessum árum sem þeim allra skemmtilegustu. Félagslífið er
oftast mjög frjótt og bara ef menn leita eftir því þá er alltaf nóg
að gera. Skólagangan er sá tími sem er tilvalinn til þess að
eignast góða vini og deila með þeim áhugamálum sínum.

Þá er boltinn kominn yfir til ykkar, notenda Huga.is til þess að
tjá ykkur um allt sem tengist skólalífinu. Tilkynningar um
viðburði í félagslífinu, eða pólitísk umræða um skólastarfið!