Jæja, nú er allt vesenið með þessi samræmdu próf búið, vei segi ég bara, var kominn með meira en leið á þessu nöldri í kennurunum um að læra mikið svona á lokasprettinum og svoleiðis kjaftæði.
Mér gekk alveg sæmilega í samræmdu prófunum. Hérna koma einkunnirnar mínar :

Íslenska : 6.5

Stærðfræði : 4.5

Danska : 8.5

Enska : 8.5

Náttúrufræði : 5.0

Ég er mjög sáttur við þessar einkunnir miðað við það að ég lærði varla neitt fyrir þessi próf.
Jæja, vildi bara deila þessum orðum með ykkur og skemmtið ykkur vel í sumarfríinu. Peace out.