Ég er að byrja í MH í haust og ég hef maaaargar spurningar og ég er svolítið stressuð.
Þið þurfið ekki að svara öllu, bara öllu sem þið getið og ekki vera vond!

1. Má ég fara niður í norðurkjallara eða verð ég lamin?
2. Borðamenningin… hvar er mér leyfilegt að sitja eða þúveist er eitthvað þannig að busarnir mega bara sitja hjá klukkunni sem dæmi?
3. Fyrirpartý… er erfitt að komast í þannig, eins og fyrir busaballið? Þarf ég að þekkja partýhaldarann eða er þetta tiltölulega opið?
4. Busunin, hvernig er hún? mjög grimm?
5. Kemur einhver bókalisti inn á síðuna eða á ég að mæta í tíma og kaupa svo?
6. Er geðveikt erfitt að kynnast fólki þarna ef maður er ekki rosalega ófeiminn?

Og bara ef það eru bara einhverjar upplýsingar sem gætu komið sér vel endilega segið mér frá. :P
Takk