Ég breytti MH í fyrsta. Maður kemst aldrei inn í Kvennó samt með hann í öðru vali.. hann er orðin svo fáránlega vinsæll að hann þarf að hafna tvisvar, næstum þrisvar sinnum fleira fólki en MH þarf að gera.
MH; artý fólk, hasshausar (sorrí) og mikið af tónlistarfólki, skemmtilegt félagslíf en hef heyrt að það sé erfitt að komast inní það í fyrstu, en geggjað þegar þú ert kominn í einhvern hóp (eða á borð eða hvernig sem þetta er í MH).
Versló: Svona mainstream fólk, söngleikir, bekkjakerfi svo það er auðvelt að kynnast fólki og bekkurinn verður yfirleitt mjög náinn, mikið og skemmtilegt félagslíf. Hef líka heyrt að námið sé mjög skemmtilegt (sérstaklega félagsfræðibrautin).
Annars eins og einhver sagði þá eru það aðallega brautirnar sem skipta máli, en félagslífið er auðvitað partur af þessu líka.
Ég skoðaði nú yfir svör þín fyrst þú brást svona illa við og ég hafði ekki tekið eftir þér hérna og komst að því þú ert nú oftar en ekki með dónaskap og segir fólki mikið að “þú hafir rétt fyrir þér” eða að “þeirra skoðun sé röng” svo ég tek ekki mikið mark á þér væni minn ;)
Annars er bekkjakerfi, söngleikir og yfihöfuð meinstream fólk í Versló, borðasystem og fjölbreyttari týpur í MH svo ég sé ekki að ég hafi verið að segja neitt rangt. Þetta eru bara steríótýpurnar og inn í þeim eru þetta svo allt saman einstaklingar auðvitað en ég var ekki að tala um það, heldur bara akkurat það sem þráðahöfundur var að spyrja um; félagslífið í stórum dráttum.
Hahahah, þú stendur undir nafni að vera einn mesti fáviti á huga.
Það er lítill sem enginn munur á fólki í MH, MR, Versló, mesti munurinn er á busunum sem halda að þeir eigi að vera artí í MH, metro í versló og lopapeysum í MR, ég sé engan mun á fólki á öðru, þriðja ári í MH og Verzló, þetta er bara fólk.
I know. Er þetta ekki busi sem er að spurja? Horfir maður ekki mest á þetta þegar maður er að velja skóla?
Kannski er þetta orðið allt öðruvísi núna en svona var þetta allavega þegar ég var að velja mér skóla á sínum tíma, auk þess að horfa á brautirnar sem þráðahöfundur nefndi ekki.
Bætt við 14. júní 2010 - 12:03 Ok hann bætti við brautinni, sá það ekki.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..