AFS á Íslandi verður með opið hús í dag, miðvikudag 21. apríl, kl. 16-18 í húsnæði samtakanna, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík.

Tilvalið fyrir áhugasama og forvitna að kynna sér:

Fósturfjölskyldur
Skiptinemadvöl
Sjálfboðaliðadvöl

Við hvetjum fólk til að líta við hjá okkur og kynna sér starfsemi AFS og það sem samtökin hafa upp á að bjóða. Sérstaklega hvetjum við fjölskyldur, sem áhuga hafa á að hýsa erlenda skiptinema, til að koma í heimsókn.