Úrslit viðureignarinnar urðu á þá leið að Menntaskólinn í Reykjavík sigraði Menntaskólann á Egilsstöðum með 34 stigum gegn 22, og héldu MR öruggri forystu allt frá hraðaspurningunum.

Þar með er Menntaskólinn í Reykjavík kominn í úrslit og mætir sigurliðinu úr viðureign Verzlunarskólans og Fjölbrautaskóla Suðurlands, en sú viðureign fer fram 20. mars n.k.