Úrslitin í 4. og síðustu viðureign 8 liða úrslita í Gettu betur urðu þau að Menntaskólinn í Reykjavík vann Kvennaskólann í Reykjavík nokkuð auðveldlega, eða með 37 stigum gegn 22.

Í undanúrslitin fóru því áfram ME, Versló, FSu og MR, og verður fljótlega dregið í undanúrslit.