Úrslit viðureignarinnar urðu þau að Menntaskólinn á Egilsstöðum sigraði Fjölbrautaskólann í Garðabæ 24:22 eftir að hafa komist 5 stig yfir á tímabili, allt leit um tíma út fyrir þægilegan sigur ME-inga, en síðan sóttu FG-ingar í sig veðrið og náðu að halda spennunni fram í seinustu spurningu.

Bætt við 13. febrúar 2010 - 21:19
ME-ingar hafa nú náð að jafna besta keppnisárangur sinn í Gettu betur, en áður náðu þeir í undanúrslit vorin 1997 og 1998.