Góðan dag, ég var að velta fyrir mér hvort einhver gæti hjálpað mér með smá stærðfræði?

Er í stærðfræði 303, og missti soldið mikið úr og á að skila heimadæmum, en ég finn ekki beint aðferðirnar til að reikna þetta.

1. Fyrir hvaða gildi á t er hornið á milli vigranna (t, 1) og (t, t-2) gleitt? (Sett öðruvísi upp, t er fyrir ofan 1 inní sviga.)

2. Þríhyrningur hefur hornpunktana A=(-1,2), B=(-4,-3) og C=(6,-3)
a) Finnið flatarmál þríhyrningsins.
b) Finnið stærð hornsins A.

3. Punktinum A=(5,1) er snúið um 100° um punktinn (0,0) og lendir þá í punktinum B. Finnið hnit punktins B.

Öll hjálp væri mjög vel þegin, þó ég skilji það mjög vel ef enginn nennir þessu =)