okei ég átti að finna ofanvarp punktsins A=(6,-4) á línuna y=4x+10 og ég byrjaði á að finna annan punkt á línunni t.d. P=(0,10)
Þá fæ ég út :
=> vigurinn PA = ( 6 )
                                 (-14)

og stefnuvigurinn v = (1-4) (þetta á að vera vigur)

þá nota ég formúluna :

[u](PA°v)[/u] * v
  (v°v)

Þannig að ° er innfeldismerki
og fæ út lausnina :

[u]-50[/u](1)
  17(4)

og til að fá út hnitin ætti maður að margfalda -50/17 inní vigurinn, en ég fæ bara annað hnitið rétt.
Samkvæmt svörunum á að koma út hnitin (-2.94, -1,76) en ég fæ bara út (-2.94, -11,76)

hvað er ég að gera vitlaust ? :/ fæ y hnitið vitlaust í öllum dæmum sem ég geri… hjálp ?