Hæ ég er í 10unda og á að lesa bókina Gravskrift for Rödhætte fyrir föstudaginn því þá er próf. Ég er kominn frekar stutt og skil voða lítið. Það er skrifað fremst í bókina hjá mér punktar:

“Vita:

-Hver fremur morðið, morðin
-Hvernig málið er upplýst
-Hvernig persónurnar tengjast
-Hver er grunaður
-Útilt persónanna”

Þetta hefur greinilega einhver sem var á undan mér párað niður fyrir próf. Núna er það sem ég veit: Það var flugfreyja myrt sem heitir Gunilla Jahnson haldandi á umslagi fullu af peningum. Kollegar hennar eru Anna, Kari og second-pilot maður að nafni Kock (lol). Svo er einhver smá sögulína (hvað er að gerast strax eftir morðið)og ég er kominn á yfirheyrslur Önnu og Kari og Kocks. Ég stórefa að ég muni klára bókina fyrir föstudag þar sem ég er kominn á blaðsíðu 39 af 170 og les mjög hægt.

Er einhver hérna sem er með efni bókarinnar á hreinu sem getur svarað punktunum hér að ofan?


Takk, Dagur Gonsalez