Málið er að ég þarf að kynna ritgerð á fimmtudaginn og ég er ekki viss um hvort ég sé að gera þetta rétt :S
Ég er með þetta í powerpoint, er með stikkorð og verð síðan með texta fyrir framan mig.
Ég er semsagt að skipuleggja ferð á einn stað á Íslandi fyrir erlenda ferðamenn. Ég er búin að gera þetta þannig að ég lýsi nánar í textanum hvað við munum gera eða skoða og síðan hef ég smá upplýsingar um sögu staðarins. Kynningin verður að vekja áhuga þeirra sem hlusta á kynninguna til að fara á staðinn sem ég er að fjalla um.

Mynduð þið gera þetta einhvern veginn öðruvísi? Ég vona að ég hafi lýst þessu nógu vel, ef ekki þá spyrjið mig bara :) Endilega segið ykkar skoðun á þessu…

Kveðja
NoAngel
Ég finn til, þess vegna er ég