Er í sumarskóla FB, á að fara í tvö próf á morgun en hef haft takmarkaðan tíma til þess að læra fyrir annað prófið (v/mígreniskasts sem ég fékk í gær og vinnu) svo ég hafði verið að hugsa um að vera ‘veik’ þegar það próf er. Vandamálið er bara að ég veit ekki hvort það séu svokölluð sjúkrapróf, en neðst á próftöflunni stendur að það sé aukapróf 30. júní. Veit einhver hvort það sé próf fyrir þá sem hafa misst af prófi eða eitthvað annað?

Stendur ekkert um þetta á fb.is/sumarskoli .. eða ég hef ekki fundið það allavega. Og ég get væntanlega ekki hringt núna til að tékka á þessu.