Ég er að fara að flytja suður næsta vetur og er alls ekki viss um í hvaða skóla mig langar í.
Ég hef verið að hugsa um MR en þá þyrfti ég að taka hellings sumarskóla og ég er ekki viss um hvort ég nenni því.

Ég er á málabraut og vil helst fara í skóla þar sem latína er kennd og þýskukennslan góð. Vitiði hvernig þetta er í MS eða MK?

Og í sambandi við MS, er bekkjarkerfi þar? Er þetta stór skóli?

Ef einhver hefur verið í þessum skólum, endilega segið mér pínu hvernig þeir eru. Og ef það eru einhverjir aðrir skólar, endilega koma með uppástungur :)
Born to talk - forced to work