Ég var að skrá mig inn á málabraut og þarf því að taka 503 í þriðja tungumáli. Ég er búin með Frönsku 403. Vandamálið er að 503 er ekki kenndur í mínum skóla og því verð ég að finna mér eitthvað gott fjarnám í þessu fagi.
Annað vandamál er að ég hef ekki verið í frönsku í soldinn tíma og er hrædd um að ég hafi gleymt ýmsu.

Þess vegna spyr ég, vitið þið um skóla sem kennir FRA503 sem er ekkert gríðarlega erfiður eða er metinn með símati? Ég veit að áfangar eiga að vera svipað erfiðir í öllum skólum en það vill bara oft verða til að kennarar gera áfanga miserfiða, hvort sem skemmtilegt námsefni gerir þá auðveldari eða eitthvað annað. Já og svo þarf áfanginn að vera kenndur í fjarnámi.

Það væri voða gott ef þið gætuð bent mér á einhvern skóla =)
Shadows will never see the sun