Ég er núna í öðrum bekk í MA en næsta vetur er ég að fara að flytja suður og veit ekki alveg í hvaða skóla ég vil fara.
Ég hef verið að velta Kvennó og MH fyrir mér, er einhver sem gæti kannski sagt mér meira um þá?
Ég veit að það er bekkjarkerfi í Kvennó, sem mér finnst mjög fínt, en í MH er meira úrval á fögum og þannig, svo ég er ekki viss.
Hefur einvher reynslu af þessum skólum?

Já og í sambandi við Kvennó, er latínukennsla þar? Og er skólin stór? Hefur einhver reynslu af málabrautinnni þar? Og þýskukennslunni, er hún ekki í lagi? :)

Ef það er einhver annar menntaskóli sem ykkur finnst góður líka, þá megiði endilega láta mig vita, ég er ekki búin að skoða neina aðra skóla neitt mikið nema MR svo ég veit ekkert hvernig hinir eru.

Takk æðislega!
Born to talk - forced to work