Jæja þá er ég fallinn á mætingu, sem er náttúrulega helvíti svekkjandi þar sem ég er með fínan námsárangur og líkar ágætlega við bekkinn
Er eins og er í MS en mér finnst lítill tilgangur í því að byrja aftur í fyrsta bekk á næsta ári, þannig að ég var að velta fyrir mér hvort ég gæti skipt um skóla núna og þá í hvaða skóla.
Var með 8.5 í samræmdu og meðaltal upp á 7.6 ef það skiptir einhverju máli, get örugglega ekki fengið neitt metið úr MS þar sem að mætingin var undir 80% í öllum fögum.