er ekki einhver ljóðasérfræðingur hérna sem er til í að hjálpa mér mega mikið með að greina ljóð?

það er seinasta verkefni sem ég a að skila og það sker út um það hvort að ég nái símatinu í Íslensku..

hjálp einhvern ? :)

Bætt við 28. nóvember 2007 - 15:36
gleymdi að segja að þetta er ljóðið sem ég á að greina.

Jónas Hallgrímsson - Alsnjóa
Frábært ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.

Eilífur snjór í augu mín
út og suður og vestur skín,
samur og samur inn og austur,
einstaklingur! vertu nú hraustur.

Dauðinn er hreinn og hvítur er snjór,
hjartavörðurinn gengur rór
og stendur sig á blæju breiðri,
býr þar nú undir jörð í heiðri.

Víst er þér, móðir! annt um oss;
aumingja jörð með þungan kross
ber sig það allt í ljósi lita,
lífið og dauðann, kulda’ og hita.