Úff, ég er alveg í skít hérna >_<
Ég veit ekkert hvaða skóla ég á að velja! Ég vil bara að hann sé á höfuðborgasvæðinu, sé með GOTT leiklistarfélag!

Ég er semsagt með alveg mjög fínar einkunnir, með 8 í meðaleinkunn í skólaeinkunn [ekki búin að fá samræmdu, þær koma í dag] og já, bara með fínar einkunnir.
Ég bý samt á Akureyri en mig langar í skóla fyrir sunnan og ég veit EKKERT hvað ég á að velja!

Mér hefur verið sagt að FB [sem ég ætlaði í] væri of lítið fyrir mig, ég ætti að fara í betri skóla og ég hef bara ekki hugmynd um neitt þarna í Reykjavík.

Einhver komment? Ég veit ekkert hvað skal velja!
-Tinna