Jæja ég er á 2. ári í MS og var að komast að því fyrir stuttu að við fáum ekkert jólaball!!
Það er vegna þess að Már(rektor) neitar að skrifa undir leyfið fyrir ballhaldinu og sömuleiðis neitar löggan því, why you ask? Útaf einhverjum andskotans hálfvitum sem verða að troða sér á böllin okkar til að vera með vesen og leiðindi og eyðileggja fyrir öllum hinum!!! Þannig fyrst þeir komast ekki á MS böllin ætla ég að vara hina skólana við því þá fara þeir bara á böllin ykkar, þannig krakkar mínir verið nú stillt og ekki berja líftóruna úr hvort öðru á þessum blessuðu böllum, bíðið allaveganna þangað til þið eruð komin í ca. kílómetra radíus frá húsinu…. smá viðvörun frá mjög svo pirruðum MS-ingi.