Þannig er það að ég er núna að fara að byrja að spá í menntaskólum, og er búinn að ákveða að fara á e-a braut sem undirbýr mig fyrir viðskiptafræði/hagfræði deildina í Háskólanum.

Er e-r önnur braut en viðskiptabrautin í Versló með svona viðskiptanám? Ekki það að ég hafi neitt á móti skólanum, bara held að ég myndi ekki passa inn þar :{

Þá er ég að tala um á höfuðborgarsvæðinu, ekki e-s staðar úti á landi á heimavist.