Mig langar að segja ykkur litla sögu úr skólanum.. , reyndar gerðist þetta nú bara í síðustu viku

Ég hef það nefnilega fyrir svona skemmtilegan vana að taka alltaf með mér gamla mix-flösku í skólann og fylla hana af vatni sem ég sýp svo af öðru hverju þegar ég verð þyrst..
Oft og mörgum sinnum hef ég lent í því að þurfa að fylla á flöskuna þar sem ég er vatnsþambari mikill.
Þá gerðist það um daginn að ég var í tíma og kláraði úr flöskunni, ennþá býsna þyrst og langar í meira vatn. Svo vildi líka svona skemmtilega til að ég var alveg í spreng á þessari sömu stund og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið.
þá var nú ekki sagan lengri en það að ég sagði við vin minn og sessunaut í tímanum að ég ætlaði að slá tvær flugur í einu höggi og fylla á flöskuna í leiðinni..
ekkert svakalegt við það nema að ég hef svona svakalega soðinn húmor og leyfði mér að hugsa út í þetta.. - að gera tvennt í einu. og þá er átt við að gera þarfir sínar og fylla á flöskuna í leiðinni.
þá fór ég í þvílíkt hláturskast að ég gat varla talað til að biðja um að fá að fara á klósettið..

segið mér svo hvort þetta var bara ég eða er þetta svona geðveikislega fyndið??



skítaköst vinsamlegast afþökkuð..



maxina