Ég er að fara að taka samræmdu prófin í dönsku og ensku og ég var að fatta að ég veit ekkert hvernig ég á að læra fyrir þau … Ég hef eiginlega aldrei lært fyrir tungumál, það eru engar glósur eða neitt til að lesa og ég er bara búin að vera í Superdansk og Network.

Ég veit að það er gott að taka gömul samræmd próf en eru til einhversstaðar glósur eða eitthvað þannig um málfræði?