Nemandi í grunnskóla á Indlandi framdi sjálfsmorð eftir að þrír kennarar börðu hann til óbóta en pilturinn var grunaður um að hafa svindlað á prófi. Kvenkyns kennari hefur verið handtekinn en hinir kennararnir, báðir karlmenn, hafa farið huldu höfði síðan að lík drengsins fannst. Lögreglan segir að hinn 14 ára gamli drengur Amol Anil Bhalosale hafi sagt skólafélögum sínum að ætlaði sér að fremja sjálfsmorð eftir að hann hafði rankað við sér eftir barsmíðarnar. Lík hans fannst þremur dögum seinna í nærliggjandi vatni en kennararnir eiga yfir höfði sér mjög alvarlegar ákærur.


tekið af nulleinn.is