Verzló var í þessum töluðu orðum að bera sigur í bítum á menntaskólanum Hraðbraut. Þetta þýðir að Verzló er komið í úrslit gegn Borgarholtsskóla. Samkvæmt mínum heimildum verður úrslitaviðureignin haldin næsta fimmtudag.

Þetta er mjög góður árangur hjá Verzló, sérstaklega í ljósi þess að skólinn er einnig kominn í úrslit í MORFÍS, en úrslitakeppnin verður á morgun gegn MH. Ég hvet alla til að fjölmenna í Háskólabíó og fylgjast með, kostar aðeins 600 kr. fyrir utanaðkomandi. Bæði lið eru mjög góð þetta árið en þau innihalda unga og efnilega ræðumenn og þ.a.m. er í liði MH fyrrverandi ræðumaður Íslands, Atli nokkur Bollason.

ÁFRAM MH!<br><br><font color=“#FF0000”>Jessalyn</font>

<font color=“#FF0000”><b>“On the rock”</b>
</font