Í ensku er ég með einn besta kennara…já en allt í einu var komin einhver gömul, fúl kelling inní stofuna og við spurðum hvar Anna (kennarinn) væri, Þessi kelling öskraði á okkur og sagði okkur að setast og vildi ekki segja okkur hvar Anna væri. Þegar við vorum sest sagði kellingin sem hét Elísabet að Anna væri veik og þessi Elísabet mundi kenna okkur næstu vikurnar. Við fríkuðum út, okkur fannst alveg nóg að klára þennan tíma með henni. Við vorum alltaf að spurja hana hvernig hún vissi að hún mundi kenna okkur næstu vikurnar en hún sagði bara að hún vissi það. Eftir nokkra daga komumst við að því að Anna var í aðgerð á öxl og spurðum Elísabeti um það og hún svaraði okkur samt þá og sagði já…….Og þessi kelling var ömurleg, hún var með okkur í svona 5.vikur og Anna er ný komin og er núna búin að kenna okkur svona 4-6 tíma