Hæhæ. Málið er að það að við 6.bekkirnir(tveir) ætlum að halda ball í skólanum(bara fyrir okkur sko). Það var kosið í dag, þrjá krakka úr mínum bekk til að vera í skemmtinefndinni. Á morgun verður svo valið þrjá úr hinum bekknum. Þannig er það…AÐ ÉG VAR KOSIN Í SKEMMTINEFNDINA! Og ég fæ bara ekki hugmyndir? Við erum með svona frekar stóran sal með sviði(einnig matsalur) og borðin er hægt að taka saman svo að við höfum allan salinn…bara fyrir okkur;) Það eru fínar græjur og líka dicoljós. En við verðum nottla að hafa eitthvað skemmtilegt! Uppákomu eða flott atriði? Einn strákurinn sem er með mér í skemmtinefndinni var að ná í góð lög af netinu og láta á disk. Ég veit ekki alveg hvað hin stelpan ætlar að gera en ég veit bara ekkert hvað ég á að gera?? Auðvitað finnum við kannski eitthvað þegar allir meðlimir nefndarinnar hittast(á morgun eða föst). En viljið þið koma með einhverjar hugmyndir? Please!

Þakkir

Elín

*Ein hugmyndasljó:-/