Þannig er mál með vexti, að í bekknum mínum er stelpa sem enginn þolir (við skulum bara kalla hana önnu) og hún á auðvitað enga vini því hún er svo skelfilega skrítin og leiðinleg og uppáþrengjandi…
T.d. hún eiginlega velur sér nokkrar stelpur og einfaldlega ofsækir þær… Hún kemur að manni í frímínútum og kremur mann (faðmar mann svo fast) og allir horfa svona á mann (vorkenna manni).
Hún er líka alveg skelfilega leiðinleg og segir alltaf algerlega tilgangslausa hluti…
Hún byrjaði allt í einu í 5. bekk að segja alltaf hæ við mig þegar ég sótti bróður minn á leikskólann því ég labbaði framhjá húsinu hennar(og á þeim tímum talaði bekkurinn minn ekki við hennar bekk og öfugt…hún var í hinum bekknum) Svo hringir hún í fólk klukkan 8 á laugardagsmorgni(reyndar ekki mig en aðrar stelpur í bekknum) og spyr hvað þær ætli að gera í dag….
Svo vill það þannig til að hún er frekar illa vaxin…en við hötum hana ekki fyrir það, það bara kemur með því við þolum ekki hvað hún er agalega uppáþrengjandi og við(stelpurnar í bekknum) baktölum hana rosalega….
Það má segja að hún leggji sig sjálf í einelti með því að klessa sér svona upp við mann…en þetta er nú mjög mjög vægt einelti sem hún lednir í…. Hún gerir sér ekki grein fyrir eineltinu sjálf…
En þegar hún er að klessa sér svona upp við mann og maður þolir það ekki, þá kannski reynir maður að sýna það mjög kurteisislega að manni finnist þetta rosalega óþægilegt og sé ekki besta vinkona hennar en hún bara nær því ekki…!
Þetta er hreinn hryllingur….

Afsakið ef það eru einhverjar ásláttarvillur því ég var að flýta mér að skrifa…