Hvað er eignlega að fólki? spyr ég nú bara.
Til að vera viss um að komast inn í menntaskóla í haust sótti ég bæði um Fjölbraut við Ármúla og Menntaskólann við Hamrahlíð. Í dag fékk ég svo svar frá FÁ um að ég kæmist inn en ég þarf að greiða staðfestingagjöldin fyrir 19. júní. En MH sendir ekki út sín svör fyrr en 20. júní.