Ok, ég veit að þetta er ekki hryllilegt en allavega ég læt það flakka. Sko ég var í leikfimi og við fórum í fótbolta og þar sem ég sýni mikla hörku í fótbolta þá sýndi ég hana enn og aftur. Og einn var rosa óánægður með það og byrjaði að kalla mig homma fífl og fávita og fleira í þessum dúr og eftir smá stund fékk ég mig fullsaddann af þessu og gaf honum einn á lúðurinn. Það blæddi úr munninum á honum og ég labbaði og hélt áfram, síðan þegar ég fékk boltann hlupu allir á mig og bombuðu mig niður. Síðan þegar við áttum að fara út þá byrjaði fíflið að klaga og ég labbaði beint út og inní klefa. Eftir það klæddi ég mig í og var snöggur út og beint í skóna, síðan heyrði ég þá tala um hvað ég væri mikill fáviti að hafa gert þetta og fleira þegar þeir höfðu ekki einu sinni hugmynd um hvað málið væri.

Síðan eftir það segir kennarinn að það hafi verið rangt af mér að kýla hann og síðan réttlætir hann flest allt sem hinn fávitinn sagði.<br><br>________________________________________________________________________

<i>Rock on. That's what they told me to say, and that's what i'm telling you.</i> - Lazlow
________________________________________________________________________