Nú er að koma að undanúrslitum í Morfís keppninni, búið er að draga og munu annars vegar FB og Versló mætast og FG og MR hinsvegar. FG og MR munu mætast á fimmtudaginn næsta kl 20 í sal FG-inga umræðuefnið mun vera Íslendingurinn og mun FG mæla með en MR á móti. Þetta mun verða spennandi keppnir og hvetjum fólk til að mæta og horfa á þessa skóla etja kappi.