Kæru Hugarar!
Ég er í níunda bekk og er farinn að hugsa mjög mikið um i hvaða menntaskóla ég vil fara í.
Mig hefur langað til að fara í MH síðan ég var sjö ára en núna er ég aðeins að pæla í MR. Ég veit að það er mjög gott og mikið félagslíf í MH, hvernig er félagslífið í MR? Ég veit líka að MR er mjög góður skóli, hvernig er aðstaðan í þessum skólum? Er hún jafn góð og í t.d. Verzló? Ég myndi samt frekar skjóta mig heldur en að fara þangað.
Gætuð þið kannski aðeins sagt mér frá kostum og göllum þessara tveggja skóla?! c",)
We´re just two lost souls swimming in a fishbowl, year after year.