Í kvöld, Þriðjudaginn 23.Október, er Kaffihúsakvöld í nýendurbættum Undirheimum F.B. þar sem Lalli, fyndnasti maður Íslands 2000, Toggi Trúbador og fleiri góðir gestir koma og skemmta fólki…

Það eru kaffi og kökur á vægu verði og ekta kaffihúsastemmning í “Café Undirheimum”.

Aðgangseyrir er 300 kr. og fylgir einn bolli af svörtu með…

Fyrir þá sem ekki vita hvar Undirheimar er, þá er þetta undir sundlauginni í Breiðholti og það er gengið niður við hliðina á innganginum á sundlauginni.

Húsið opnar kl.20:00