Busavígsla FG fór fram einungis annan skóladaginn, og var mjög eftirminnileg þar sem að mikið af vatni og allskonar óþvera kom við sögu. Allir busar fengu viðeigandi boli sem stóð mismunandi hlutir á svo sem, I did not have in a sexual relationship with that woman, Best fyrir (dagsetning), ég tek visa, osfrv. Farið var með alla busana út og voru sérvaldir heppnir busar sem fengu egg, íssósu, matarolíu og þess háttar í sig við litla hrifningu busa. Búið var að koma upp körfu þar sem busar reyndu fyrir sig að hitta í körfu, ef þeir klikkuðu þurftu þeir að dýfa sér alveg ofan í karið sem var fullt af vatni með fiskimjöli í, hráukum, og eitthvað fleirra. Síðan þurftu busarnir að fara í gegnum net fullt af ísmolum og synda í moldinni, eftir það var farið með alla busana og sturtaði yfir þá vatni og boðnir velkomnir í skólan, og fengu að launum súkkulaði og fanta. Vígslan verður svo endanlega í kvöld með busaballi á astró kl.22:00 - ? verð kr 1600 fyrir nffg 2200 fyrir aðra, miðasala í FG opin til 20:00