Ég sendi áður inn grein um eitthvað fyndið sem kennara hafa gert en núna ætla ég að taka náttúrufræði kennaran fyrir(hann kennir líka tölvur)

Í fyrsta tímanum okkur hjá þessum kennara var einn strákur að lemja í borðið með puttunum(kemur sona tik tik tikk, vona að þið fattið), heyrðist þá skyndilega í kennaranum.“þú átt ekki að gera svona þetta er vont fyrir vöðvana þar sem þú notar bara einn vöðva í einu, gerðu frekar svona, leggur hann alla puttana saman nema þumalputtan, en snýr þeim(þumalputtunum) í hringi.Síðan bætir hann við: svona hreifiru miklu fleiri vöðva í einu. Núna í tíma getur engin hætt að gera þetta og nú segjir kennarinn að í tíunda. bekk munum við fá miklu meira krefjandi puttaverkefni.

_______________________________________________

Eitt sinn sátum ég og tvær hlátuglaðar vinkonur mínar á bekk og vorum að herma eftir svínum.(ekki spyrja um ástæðuna fyrir því) En við vorum eitthvað að hlæja og hrína og þá labbaði kennarinn framhjá og þegar hann heyrði í okkur heyrðist mjög einhverft hmmmmm.

_______________________________________________

Í einum tíma hjá kallinum vorum við hláturglöðu vinkonurnar í miklu hláturskasti, aðalega yfir því að við vorum að ýminda okkur náttúrfræðikennarann hlaupa niður stigan og hrína eins og svín ;)
En síðan reyndi ég að stilla mig og biðja kennarann um hjálp ( hvort er ættkvísl eða ættbálkur á undann ætt) kennarinn gaf mér svarið og þá sagði ég en heyrðu ef ættfræðinn stenst eigum við víst að vera fjórmenningar.
Núnú? segir kennarinn, ertu að austan?
Jamm! svara ég.
Þá heyrist í kennaranum: Gat verið!
(ættinn að austan er nefnilega mjög klikkuð)

_______________________________________________

Síðan var ég einu sinni stödd á ganginum og var með ”pínu" hávaða. Birtist þá náttúrfræðikennarinn og glotti.Síðan ýtti hann mér inn í stofuna og segjir: Viltu ekki segja okkur það beint hvað er svona skemmtilegt?
(Reyndar tókst honum ekki alveg að ýta mér inn í stofuna því ég hljóp skelfingu lostinn í burtu)

_______________________________________________

Það er hellingur í viðbót sem ég gæti skrifað um en ég bara nenni því ekki núna ;)
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?