Í dag eru kosningar í FVA um embætti í NFFA á næsta skólaári. Í gærkvöldi var framboðsfundur á sal skólans þar sem fromboðin kynntu sig. 3 framboð eru til aðal stjórnar, og eru það framboðin: “GAS” skipað af Gummó, Önnu og Siggu. “Þú ert framboð” skipað af Heiðari, Didda og Ragga. “Tres Locos” skipað af Davíð, Gunnari og Jóni. Spennan er mjög mikil, en úrslitin verða kynnt á lokaballinu á föstudaginn 11. maí þar sem Land & synir munu spila.