Næstkomandi fimmtudag munu MR-ingar blása rykið af Travolta búningnum og taka fram þykkbotna skóna því þá verður haldið Diskóball á einum af betri stöðum borgarinnar, Gauk á Stöng.

Það kostar einungis 1300. kr fyrir MR-inga og 1500 kr. fyrir alla hina, það er ekki mikið miðað við það að Disco-Queen Íslands, Páll Óskar, verður að halda uppi rífandi góðum diskófíling. Einnig mun DJ Fingaprint sjá um alla þá sem ekki vilja dansa heldur “Bounca”.

Hvernig er svo þetta fyrir þá sem eru búnir að vera tala niðrandi orðum um félagslífið í MR?