Gettur Betur - Undanúrslit Eftir að MR burstaði FSu 41-21 og Logi Bergmann dró í undanúrslit er ljóst að það verða erkifjendurnir MR og MA sem etja kappi þann 16. mars og ljóst að þar verður stórveldaslagur.

Borgarholtsskóli mætir svo MS 23. mars í síðustu viðureigninni fyrir úrslitin.

Hverjir eru svo líklegastir til sigurs í ár?