Listavika og Fríkball í Verzló Í næstu viku hefst listavika í Verzló og verður eflaust fullt af fínum verkum til sýnis þar sem verzlingar eru annálaðir fyrir listhneigð sína (!?!??!).
Og svo munu þeir halda stórt dansiball á fimmtudeginum 15.febrúar og nefnist það Fríkball, þar sem allir mega vera eins fríkaðir og “öðruvísi” og þeir vilja, og er ég viss um að það eru ófáir verzlingar sem eru farnir að vilja komast úr jakkafötunum sem mamma þeirra verslaði í Hugo Boss og yfir í eitthvað þægilegra, því að það er líka venjulegt og fríkað fólk í Verzló.