Árshátíð NFFA 2001 ... Nostalgia - Fortíðarþrá Árshátíð NFFA 2001 verður haldin laugardaginn 10. mars í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Og ber hún nafnið Nostalgia - Fortíðarþrá. Húsið opnar kl. 18:30 en borðhald byrjar kl. 19:00. Stórglæsilegur veislumatur verður á borðum. Fullt af skemmtiatriðum, meðal annars frægur leynigestur! Veislustjóri verður Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður með meiru.
Svo þegar líða fer á kvöldið er kominn tími til að skella sér á ball, og verða það þeir síungu STUÐMENN sem leika fyrir dansi langt fram á nótt, einnig mun dj nökkvi sjá um að þeyta skífum.

Í árshátíðarnefnd eru þær Guðmundína Arndís Haraldsdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir og biðja þær alla vinsamlegast að mæta í sínu fínasta pússi því að þetta sé Galakvöld og ekkert sé til sparað.