Vinnumiðlun Skólafólks Nú er engin afsökun að það sé svo erfitt að finna vinnu og þú NEYÐIST til að sitja á rassgatinu alla daga!

Því þann 1.mars næstkomandi opnar Vinnumiðlun Skólafólks, sem mun beita sér fyrir því að hjálpa þér að finna þér vinnu, ef þú ert orðinn 17 ára, í skóla og með lögheimili í Reykjavík (enga krakka á dreifibýlisstyrk takk fyrir!).

Þetta er allt saman í samstarfi við snillingana í Hinu Húsinu sem hafa beitt sér fyrir því að gera líf unglinga á skerinu aðeins áhugaverðara síðastliðin ár.

Þið getið sótt um aðstoð niðrí Aðalstræti 2, milli klukkan 9 og 5 alla virka daga eða á netinu á slóðinni http://storf.hitthusid.is

Umsóknarfrestur er til 30.Apríl næstkomandi.