Mig langaði að segja ykkur frá busadegin mínum.

Þetta byrjaði þanni að þegar ég kom í skólann kl 9 þá vorum við látin skríða undir borð sem að var inngangurinn okkar(busanna) svo vorum við látin í bol hvítan bol sem að á stóða busi, og eitthvað ljótt. Svo fór ég í stærðfræði og allt gegg voða vel en þegar að frímínúturnar voru þá var krotað fullt framan í mig og ég látin drekka lýsi( ég spýtti því reyndar í vaskinn). Svo var ég og vinkona mín í eyðu og við vorum að drulla á okkur úr hræðslu en það var svo sem ekkert slæmt gert við okkur við vorum bara látnar éta aspas no big deal. En klukkan 12 þá byrjaði gamanið þá byrjuðu alltí einu svaka læti og allir böðlarnir voru klæddir hermannagöllum voru með grímur þannig að maður vissi ekkert hver var hvað. Það var byrjað á því að hrúa okkur öllum í eina hrúgu á gólfið hvert ofan á annað og ég þurfti að vera svo óheppin að vera neðst:S. Svo fóru þau með okkur út og það var sprautað á okkur mysu og hellt á okkur drullu. Svo vorum við látin setjast ofan í fiskikar með ógeðslegu vatni sem var ískalt, eftir það vorum við látin skríða undir neti á klökum sem að voru búinir að vera á fisku(lyktin var ekki góð). Svo vorum við látin vaða yfir skítalækinn( það er sko skítafýla úr honum) Þegar það var búið þá var fagnað okkur vel í skólann og við fengum gefisns pepsi.

Svo um kvöldið var busaballið sem var geðveikt stuð, allir blindfullir og það var bara gaman.