Gleymt lykilorð
Nýskráning
Skjár

Ofurhugar

sigzi sigzi 3.388 stig
cactuz cactuz 2.754 stig
Karat Karat 2.308 stig
Loaloa Loaloa 2.196 stig
heidal heidal 2.092 stig
Indy Indy 2.028 stig
Kjarrval Kjarrval 1.678 stig

Stjórnendur

THE jólamynd. (17 álit)

THE jólamynd. Ef þessi mynd kemur þér ekki í jólaskap þá áttu skilið að heima í búri.

Home Alone (14 álit)

Home Alone þett'er skemtileg mynd :)

Morgan DeWitt (4 álit)

Morgan DeWitt Hin lygigjarna Morgan er komin aftur í Bold and the Beautiful…
Þetta er leikkonan, Sarah Buxton með köttinn sinn:)

Return of the King (12 álit)

Return of the King Ótrúlega flott atriði.

Monica og Chandler (12 álit)

Monica og Chandler hehe snildar atriði

Trivia (6 álit)

Trivia Hvaða mynd? og hvaða tveir frægu leikarar í þessari mynd bjuggu saman og hafa þekkst frá árinu 1956?

hvaða mynd? (21 álit)

hvaða mynd? … well?

Custer & Indjánarnir (3 álit)

Custer & Indjánarnir Hér er “outtake” úr nýjustu grein minni (sem birtist fljótlega á þessu áhugamáli). Ákvað að sleppa þessu úr greininni, þar sem það féll ekki alveg að efni hennar. Samt synd að hafa skrifað þennan texta til einskis, og ég læt hann því fljóta með þessari mynd:


Ein af sögulega vafasömustu myndum sem út kom á þessum tíma (um 1940) var They Died With Their Boots On. Hér var sjarmatröllið ástralska Errol Flynn í hlutverki George Armstrong Custer, “indíánabanans” alræmda. Custer fór fyrir “7th Cavalry” Bandaríkjahers, sem á árunum eftir Borgarastríðið hafði það hlutverk helst að stunda það sem í dag er kallað þjóðernishreinsanir. Indíánaþjóðflokkar sem í vegi voru fyrir útbreiðslu Bandaríkjanna til vesturs, voru miskunnarlaust sallaðir niður. Custer hafði getið sér svolítið orðspor í Borgarastríðinu, en var í raun drykkfelldur og mjög óvíst þótti um geðheilsu hans, sérlega eftir að hann hóf hlutverk sitt sem “indíánabani”. Enda mætti hann endalokum sínum árið 1876 þegar hann gegn ráðum skynsamari manna leiddi riddaralið sitt í gildru Sioux-indíána, sem með ofurefli liðs þurrkuðu það gersamlega út í Orrustunni við Little Big Horn.

En í meðferð handritshöfundanna, og ekki síður Errols Flynn, varð Custer að misskildu ljúfmenni sem í raun reyndi allt hvað hann gat til að koma á friði við Síuxa, og verja þá fyrir ágangi fégráðugra landnema. Orrustan varð fyrir misskilning sem varð að undirlagi illra peningaafla í Washington, og Custer lét lífið sem fórnarlamb aðstæðna.

Þrátt fyrir hroðalega frjálslega meðferð á sögunni varðandi Custer og hans menn, mátti myndin þó eiga að hún sýndi þó indíána sem persónur, ekki bara villimenn og byssufóður “káboja”. Höfðingi Síuxa, Óði Fákur, var leikinn af Anthony Quinn í einum af sínum fyrstu hlutverkum. Hann er ekki að ráðast á hvíta menn af blóðþorsta einum saman, hann hefur hagsmuni síns þjóðflokks að gæta, og reynir hvað hann getur til að halda friðinn.

Geimflaug Anakins (8 álit)

Geimflaug Anakins Þetta er geimflaug Anakins sem fylgdi honum í mörg hættuleg verkefni fyrir Lýðveldið.

Hvaða mynd (4 álit)

Hvaða mynd önnur trivia
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok