Skjálfti 4 | 2004, leikjamót Símans og Opinna kerfa verður haldinn helgina 12. - 14. nóvember í íþróttahúsi HK (Digranes), Kópavogi.

Mótsgjald er krónur 3500, en þeir sem eru með leikjaáskrift Internetþjónustu Símans fá 1000 króna afslátt og greiða því 2500 krónur.

Skráning einstaklinga stendur yfi 24. október - 2. nóvember. Hægt verður að eiga við lið eitthvað lengur (mjög stutt þó). Við viljum benda fólki á að vera tímanlega í skráningu, fjöldi þáttakenda er takmarkaður og færri hafa komist að en vildu undanfarin mót. Á mótið komast aðeins 528 og hafa þeir forgang inn á mótið sem eru með leikjaáskrift hjá Símanum Internet. Fyrir aðra gildir skráningartíminn. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Skráning mun fara fram á www.skjalfti.is/skraning

Skráningarkerfið verður eins og á síðustu mótum, fyrst þarf að skrá einstakling á mótið (einstaklingsskráning), en fyrir liðakeppnir þarf að stofna lið, og síðan skrá leikmenn í liðið. Ef það reynist nauðsynlegt að takmarka fjölda liða í ákveðnum greinum gildir sú regla, að þau lið sem eru fyrst skráð komast inn, þau seinustu ekki.

Athugið að lesa Skjálftaskráningar FAQið!

Keppt verður í eftirfarandi greinum á mótinu:

Half-life:
- Counterstrike (5 vs 5, hámark 64 lið)

Battlefield 1942:
- Conquest (10 vs 10)

Quake III Arena:
- Deathmatch Teamplay (4 vs 4)
- Capture The Flag (5 vs 5)
- 1 on 1

DooM III:
- Líkast til 1v1

Warcraft III
- Frozen Throne (1 vs 1)

Enemy Territory
- Stopwatch (6 vs 6)

Call of Duty (ef næg þátttaka næst)
- S&D (6 vs 6)
- Deathmatch (upp á fjörið, skráning á staðnum!)

<b>Dagskrárrammi</b> - þetta eru gróf drög að dagskrá mótsins - dagskrá einstakra greina með fullri nákvæmni kemur á hvert áhugamál fyrir sig er nær dregur.

Föstudagur
- CS riðlar
- Q3 1v1 / DooM 3
- CoD S&D

Laugardagur
- Mögulega 2-3 CS riðlaumferðir
- CS útsláttur
- CS B-keppni (útsláttarkeppni fyrir lið sem detta út úr riðlum)
- Q3 TDM
- Q3 CTF (síðdegis)
- Enemy Territory
- CoD S&D
- BF1942 Conquest (snemma, upp úr hádegi)

Sunnudagur
- Q3 CTF (frh)
- Enemy Territory (frh)
- BF1942 Conquest (frh)
- WC3 TFT 2v2
- CoD Deathmatch
- CS úrslit
- Q3 úrslit


Dagskrá verður með þeim hætti að unnt verður að spila:
- Báðar CoD greinar
- ET og Q3 TDM
- Q3 1v1, Q3 TDM og annaðhvort ET eða WC3
- CS riðla og ET, WC3, BF1942 eða CS B (fyrir lið sem detta út eftir riðla)
- Q3 1v1/DooM 3 1v1 og BF1942
- Allar Q3 greinar
- Mögulega fleiri möguleika sem undirritaður kom ekki auga á :)

Fyrir hönd Skjálftap1mpa,
Smegma