Skjálfti 2 | 2004, leikjamót <a href="http://www.siminn.is“>Símans</a> og <a href=”http://www.ok.is“>Opinna kerfa</a> verður haldinn helgina 4. - 6. júní í íþróttahúsi HK (Digranes), Kópavogi.

Mótsgjald er krónur 3500, en þeir sem eru með leikjaáskrift Símans Internets fá 1000 króna afslátt og greiða því 2500 krónur.

Skráning einstaklinga stendur yfir 9. - 16. maí. Hægt verður að eiga við lið eitthvað lengur. Við viljum benda fólki á að vera tímanlega í skráningu, fjöldi þáttakenda er takmarkaður og færri hafa komist að en vildu undanfarin mót. Á mótið komast aðeins 528 og hafa þeir forgang inn á mótið sem eru með leikjaáskrift hjá Símanum Internet. Fyrir aðra gildir skráningartíminn. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Skráning mun fara fram á <a href=”http://www.skjalfti.is/skraning“>www.skjalfti.is/skraning</a>

Skráningarkerfið verður eins og á síðustu mótum, fyrst þarf að skrá einstakling á mótið (einstaklingsskráning), en fyrir liðakeppnir þarf að stofna lið, og síðan skrá leikmenn í liðið. Ef það reynist nauðsynlegt að takmarka fjölda liða í ákveðnum greinum gildir sú regla, að þau lið sem eru fyrst skráð komast inn, þau seinustu ekki.

Athugið að lesa <a href=”http://www.skjalfti.is/skraning/faq.php">Skjálftaskráningar FAQið!</a>

Keppt verður í eftirfarandi greinum á mótinu:

Half-life:
- Counterstrike (5 vs 5, hámark 64 lið)

Quake III Arena:
- Deathmatch Teamplay (4 vs 4)
- Capture The Flag (5 vs 5)
- 1 on 1 (hámark 64 þáttakendur)

Warcraft III
- Frozen Throne (2 vs 2)

Enemy Territory
- Stopwatch (6 vs 6)

Call of Duty
- S&D (6 vs 6)
- Deathmatch (upp á fjörið, skráning á staðnum!)

<b>Dagskrárrammi</b> (dagskrá einstakra greina með fullri nákvæmni kemur á hvert áhugamál fyrir sig er nær dregur)

Föstudagur
- CS riðlar
- Q3 1v1
- CoD S&D

Laugardagur
- CS útsláttur
- CS B-keppni (útsláttarkeppni fyrir lið sem detta út úr riðlum)
- Q3 TDM
- Enemy Territory
- CoD S&D

Sunnudagur
- Q3 CTF (frh)
- Enemy Territory (frh)
- WC3 TFT 2v2
- CoD Deathmatch
- CS úrslit
- Q3 úrslit


Dagskrá verður með þeim hætti að unnt verður að spila:
- Báðar CoD greinar
- ET, Q3 CTF eða WC3
- Q3 1v1, Q3 TDM og ET eða WC3
- CS riðla og ET, WC3 eða CS B (fyrir lið sem detta út eftir riðla)
- Allar Q3 greinar
- Mögulega fleiri möguleika sem undirritaður kom ekki auga á :)

Fyrir hönd Skjálftap1mpa,
Smegma