Skjálfti 1 | 2004, leikjamót <a href="http://www.siminn.is“>Símans</a> og <a href=”http://www.ok.is“>Opinna kerfa</a> verður haldinn helgina 20. - 22. febrúar í íþróttahúsi HK (Digranes), Kópavogi. Mótið er styrkt af Mountain Dew og Skífunni.

Mótsgjald er krónur 3500, en þeir sem eru með leikjaáskrift Símans Internets fá 1000 króna afslátt og greiða því 2500 krónur.

Skráning stendur yfir 16. janúar - 1. febrúar. Við viljum benda fólki á að vera tímanlega í skráningu, fjöldi þáttakenda er takmarkaður og færri hafa komist að en vildu undanfarin mót. Á mótið komast aðeins 528 og hafa þeir forgang inn á mótið sem eru með leikjaáskrift hjá Símanum Internet. Fyrir aðra gildir skráningartíminn. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Skráning mun fara fram á <a href=”http://www.skjalfti.is/skraning“>www.skjalfti.is/skraning</a>

Skráningarkerfið verður eins og á síðustu mótum, fyrst þarf að skrá einstakling á mótið (einstaklingsskráning), en fyrir liðakeppnir þarf að stofna lið, og síðan skrá leikmenn í liðið. Ef það reynist nauðsynlegt að takmarka fjölda liða í ákveðnum greinum gildir sú regla, að þau lið sem eru fyrst skráð komast inn, þau seinustu ekki.

Athugið að lesa <a href=”http://www.skjalfti.is/skraning/faq.php">Skjálftaskráningar FAQið!</a>

Keppt verður í eftirfarandi greinum á mótinu:

Half-life:
- Counterstrike (5 vs 5, hámark 64 lið)

Quake III Arena:
- Deathmatch Teamplay (4 vs 4)
- Capture The Flag (5 vs 5)
- 1 on 1 (hámark 64 þáttakendur)

Warcraft III
- Frozen Throne (2 vs 2)

Battlefield 1942
- Conquest (10 vs 10 að öllum líkindum)

Enemy Territory
- Stopwatch (6 vs 6)


<b>Dagskrárrammi</b> (dagskrá einstakra greina með fullri nákvæmni kemur á hvert áhugamál fyrir sig er nær dregur)

Föstudagur
- CS riðlar
- Q3 1v1
- BF1942

Laugardagur
- CS útsláttur
- BF1942 (frh)
- CS B-keppni (útsláttarkeppni fyrir lið sem detta út úr riðlum)
- Q3 TDM
- Enemy Territory

Sunnudagur
- Q3 CTF (frh)
- Enemy Territory (frh)
- WC3 TFT 2v2
- CS úrslit
- Q3 úrslit


Dagskrá verður með þeim hætti að unnt verður að spila:
- BF1942 og ET, Q3 CTF eða WC3
- Q3 1v1, Q3 TDM og ET eða WC3
- CS riðla og ET, WC3 eða CS B (fyrir lið sem detta út eftir riðla)
- Allar Q3 greinar


Fyrir hönd Skjálftap1mpa,
Smegma