Skjálfti 4 | 2003 fer fram helgina 19. - 21. desember, en ekki 12. - 14. eins og upphaflega var auglýst. Ljóst var að mikill fjöldi leikmanna kæmist ekki á þeim tíma sem upphaflega var auglýstur (vegna anna við jólapróf).

Þar sem staðfestingarferli var ekki hafið er óþarft að hefja skráningu að nýju. Svona virkar þetta einfaldlega:
1. Þeir sem eru skráðir og hyggjast koma eftir breytingu: þurfa ekkert að aðhafast, bara að staðfesta þegar þar að kemur
2. Þeir sem eru skráðir en komast ekki eftir breytingu: afskrá sig þegar staðfestingarferlið hefst
3. Þeir sem ekki voru skráðir, en vilja koma eftir breytingu: skrá sig!


Spurningar má senda á skraning at skjalfti punktur is, eða bera fram á #skjalfti-skraning á IRCnet. Er það von okkar að þessi breyting gleðji þá sem sáu ekki fram á að geta mætt vegna prófa.

Kv,
Smegma