Kæru Hugar,

Það er mér sönn ánægja að kynna fyrir ykkur eilitla keppni er verður vonandi háð í lok maí, 24 maí eða 31 maí.
Keppt verður í svokölluðum Litbolta og eru liðin ekki af verri kantinum.

Stjórn Smells skorar hér með formlega á Stjórn Skjálfta í Paintball. Lengi hefur verið ætlun stjórnar Smells að auka samskipti og liðleika milli þessara tveggja stjórna og með þessu
vonum við að fyrsta skrefið verði tekið í rétta átt. Dagsetning sem við höfum í huga er einhverntíma í lok Maí, og staðsetning myndi vera Fossvogsvöllurinn. Við vonumst eftir góðum viðbrögðum frá Skjálfta-Pimpunum og hlökkum til að mæta hressir til leiks.

Að lokum viljum við bæta við smá hugleiðingu : Með hvoru liðinu ætlar svo b3nni að keppa :)

Nú er komið að ykkur kæru Pimpar að svara,

Kveðja,
Stjórn Smells.