Núna um helgina var haldið fyrsta stóra Aliens versus Predator 2 mótið á CPL í Dallas. Þar bar sigur úr býtum Jonathan Wendel, betur þekktur sem Quake 3 stjarnan Fatal1ty, en hann var áberandi bestur á þessu móti. Hann keyrði síðan heim á sérútbúnum Ford Focus ZX3 2002 árgerð, sem er metinn á u.þ.b. 30.000 dollara, sem var í fyrstu verðlaun.
Fatal1ty var nýlega búinn að afþakka boð um autoberth á WCG Quake 3 mótið í Kóreu þar sem það kom aðeins tveimur vikum fyrir mótið og sér líklega ekki eftir því núna. En hann sýndi og sannaði með þessum sigri að góður spilari kemst langt, sama hvaða leik hann snýr sér að.

[.Hate.]Memnoch