Viltu taka þátt í að móta spennandi alþjóðaviðburð fyrir dróttskáta?

Ert þú dróttskátaforingi?


Komdu þá á spennandi fund í Skátamiðstöðinni í Hraunbænum á mánudaginn kl. 20:00.

Verkefnahópur á vegum Alþjóðaráðs er að vinna að hugmynd um “Smáþjóðaleika skáta”.

Hópurinn vill gjarnan fá hugmyndaríka dróttskátaforingja í lið með sér og boðar því til spjallfundar mánudaginn 19. maí nk. kl. 20:00 í Skátamiðstöðinni í Hraunbæ.

Allir dróttskátaforingjar sem hafa áhuga á að taka þátt í að móta dagskrá svona alþjóðaviðburðar eru hvattir til að mæta á fundinn og koma hugmyndum sínum á framfæri.
- Á huga frá 6. október 2000